Landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 9 mörk og var markahæst í liði Molde þegar liðið bar sigurorð af Sola, 28:27, í lokaumferð norsku B-deildarinnar í handknattleik í dag.
Molde, undir stjórn Einars Jónssonar, hafði þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni en liðið endaði í öðru sæti á eftir Sola.