Ellefu marka sigur Hauka

Ragnheiður Ragnarsdóttir, Haukum.
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Haukum. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Haukar unnu nýliða Fjölnis með ellefu marka mun, 33:22, í Olís-deild kvenna í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld. Haukar voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda og m.a. var sjö marka munur í hálfleik, 17:10.

Þetta var fyrsti sigur Hauka en liðið tapaði fyrir Selfossi í fyrstu umferð um síðustu helgi. Fjölnir vann HK í fyrstu umferð.

Lið Hauka var mikið sterkara í þessu leik en lið Fjölnis gafst aldrei upp og barðist af krafti allt til leiksloka þótt við ofurefli væri að etja.

Mörk Hauka: María Karlsdóttir 8, Ramune Pekarskyte 6, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 5, Vilborg Pétursdóttir 5, Ragnheiður Ragnarsdóttir 3, Karen Ósk Kolbeinsdóttir 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 2, Anna Liian Þrastardóttir 1, Natalia Ægisdóttir 1.

Mörk Fjölnis: Díana Kristín Sigmarsdóttir 11, Andrea Jacobsen 4, Berglind Benediktsdóttir 3, Sara Dögg Hjaltadóttir 2, Andrea Dögg Harðardóttir 1, Diljá Baldursdóttir 1. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert