„Við komum einfaldlega ekki tilbúnar í þennan leik það er bara ekki hægt að mæta þannig í leik á móti ÍBV,“ sagði Halldór Ingólfsson, annar þjálfara Stjörnunnar eftir sex marka tap í Eyjum í kvöld í Olís-deild kvenna í handknattleik. Leikurinn endaði 31:25 og var aldrei vafi hvort liði myndi taka 2 stig.
Stjörnustelpur spiluðu flotta vörn á móti Val í síðustu umferð en það var ekki það sama uppi á teningnum í dag. „Það þýðir ekkert að spila góðan varnarleik í einn leik og vera svo ekki á staðnum í þeim næsta, þetta þurfum við að laga,“ sagði Halldór.
Viðtalið í heild má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.