Benfica og ÍBV mættust í seinni leiknum í 3. umferð Áskorendabikars Evrópu í handknattleik karla í Lissabon í kvöld. Leiknum lauk með 8 marka sigri Benfica 34:26 og fara þeir áfram í 4. umferð keppninnar.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og mikill hraði í leiknum. ÍBV var skrefinu á undan lengst af en Benfica náðu forystunni þegar að skammt var eftir af fyrri hálfleik og leiddu með einu marki í hálfleik 17:16.
Heimamenn byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti og gerðu fjögur mörk í röð. Þá tóku Eyjamenn við sér og svöruðu með fjórum mörkum í röð. Hægt og rólega bættist við forskot Benfica sem kláruðu svo leikinn auðveldlega síðustu 10 mínúturnar og unnu 8 marka sigur á ÍBV 34:26.
Hjá ÍBV voru Einar Sverrisson og Andri Heimir Friðriksson með 6 mörk hvor. En hjá Benfica var Elledy Semedo markahæstur með fjögur mörk en markaskorun liðsins dreifðist vel og þrír leikmenn með fjögur mörk og þrír leikmenn þrjú mörk.
Benfica | 34:26 | ÍBV | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Hugo Costa Figueira (Benfica) varði skot Ver frá Nökkva. Hefur verið góður í dag. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |