Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur þá 28 leikmenn sem koma til greina í íslenska landsliðið sem tekur þátt í Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Póllandi í janúar. Þessum lista var skilað til inn til Handknattleikssambands Evrópu fyrir hádegi í dag.
Í hópnum eru fimm leikmenn sem leika með félagsliðum á Íslandi. Aðrir leika með félagsliðum utan landssteinanna.
Af leikmönnunum 28 mun Aron velja 16 leikmenn til þess að taka þátt i mótinu. Ef Aron þarf eða vill gera breytingar á 16 manna hópnum eftir að mótið er hafið má hann aðeins kalla til leikmenn úr neðangreindum hóp.
Æfingar A-landsliðs karla hefjast 29. desember og spila landsliðið við Portúgal í Höllinni 6. og 7. janúar. Föstudaginn 8. janúar heldur liðið til Þýskalands þar sem lokaundirbúningur liðsins fer fram og verða m.a. spilaðir tveir leikir Þjóðverja.
<span>Meðfram æfingum A landsliðs karla hérna heima æfa líka B landsliðið og u20 karla.<br/></span>Markverðir:
Aron Rafn Eðvarðsson, Alaborg
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Daníel Freyr Andrésson, SonderjyskE
Hreiðar Leví Guðmundsson, Akureyri
Aðrir leikmenn:
Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Aron Pálmarsson, MKB Veszprém KC
Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Arnór Atlason, Saitn Raphaël
Guðjón Valur Sigurðsson, FC Barcelona
Snorri Steinn Guðjónsson, Nimes
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Alexander Petersson, Rhein Neckar Löwen
Róbert Gunnarsson, Paris Handball
Sigurbergur Sveinsson, Tvis Holstebro
Ernir Hrafn Arnarson, Emsdetten
Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein Neckar Löwen
Tandri Már Konráðsson, Ricoh
Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin
Bjarki Már Gunnarsson, EHV Aue
Guðmundur Árni Ólafsson, Mors-Thy
Árni Steinn Steinþórsson, SonderjyskE
Róbert Aron Hostert, Mors-Thy
Arnar Freyr Arnarsson, Fram
Janus Daði Smárason, Haukum
Guðmundur Hólmar Helgason, Val