Handknattleiksdeild Fylkis hefur samið við norska leikmanninn Christine Rishaug um að leika með kvennaliði félagsins næstu tvö árin í Olís-deildinni.
Rishaug er fædd 17. mars 1987. Hún er miðjumaður sem jafnframt getur vel leyst aðrar stöður á vellinum. Hún er frá Molde og þar spilaði hún undir stjórn Einars Jónssonar frá 2013 til 2015. Á síðustu leiktíð var hún hins vegar spilandi þjálfari hjá Midsund IL í Noregi.