Þýska meistaraliðið Rhein-Neckar Löwen sem þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson leika með vann í kvöld góðan sigur á Evrópumeisturum Kielce á útivelli í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handknattleik.
Löwen fagnaði öruggum sigri, 34:26, eftir að hafa verið einu marki yfir í leikhléi, 16:15.
Guðjón Valur náði ekki að skora fyrir Löwen en Alexander skoraði 2 mörk. Kielce og Vardar eru í toppsætunum í B-riðlinum með 8 stig en Löwen fylgir fast á eftir með 7 stig.