Elín átti stórleik í sigri Hauka

Stórskyttan Ramune Pekarskyte er burðarás liðs Hauka.
Stórskyttan Ramune Pekarskyte er burðarás liðs Hauka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar unnu öruggan sigur á ÍBV, 28:25, Olís-deild kvenna í Shenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Þeir voru með yfirhöndina allan leikinn og náðu mest sjö marka forskoti í síðari hálfleik, 23:16. Haukar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12:10, en góður upphafskafli liðsins í síðari hálfleik lagði grunn að sigrinum ásamt stórleik Elínar Jónu Þorsteinsdóttur markvarðar sem varði 20 skot.

Sem fyrr segir þá voru Haukar sterkari frá upphafsmínútum leiksins. Þeir tóku forystuna strax og héldu henni til enda. Flestir leikmenn Eyjaliðsins virtust daufir í dálkinn og náðu sér lítt á strik. Á síðustu mínútum leiksins freistaði Eyjaliðið að bíta frá sér í kjölfar þess að Haukar fóru illa að ráði sínu í nokkrum sóknum. Þá herti Elín Jóna róðurinn í markinu og varði hvert opið marktækifærið á fætur öðru auk þess sem stalla hennar, Tinna Húnbjörg, varði eitt vítakast.

Haukar eru í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig en ÍBV er í sætinu fyrir neðan með 10 stig. Enn eru átta umferðir eftir af deildinni en ljóst að þetta tap dró nokkuð úr möguleikum ÍBV-liðsins á að ná fjórða sæti deildarinnar. Fjögur efstu lið deildarinnar ná sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í vor.

Ramune Pekarskyte skoraði níu mörk fyrir Hauka og var markahæst þrátt fyrir að vera tekin úr umferð verulegan hluta leiksins. Hornamaðurinn Sigrún Jóhannsdóttir kom næst með fimm mörk. Greta Kavailuskaite skoraði átta mörk fyrir ÍBV og Karólína Bæhrenz Lárudóttir var næst með sjö mörk.

Leikurinn var í beinni textalýsingu á mbl.is. Tölfræði leiksins er hér fyrir neðan.

Haukar 28:25 ÍBV opna loka
60. mín. Haukar fékk 2 mínútur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert