FH fór með sigur af hólmi, 4:3, þegar liðið mætti St. Pétursborg í vítakeppni í Rússlandi til þess að útkljá einvígi liðanna í 2. umferð EHF-bikarsins í handknattleik í morgun.
Það blés raunar ekki byrlega fyrir FH-inga í byrjun þar sem Ásbjörn Friðriksson klúðraði fyrsta vítakasti keppninnar. Ágúst Elí Björgvinsson varði hins vegar tvö vítaköst í keppninni og kom FH í góða stöðu.
Einar Rafn Eiðsson, Óðinn Þór Ríkharðsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ísak Rafnsson skoruðu úr sínum vítaköstum og tryggðu FH áfram í 3. umferð keppninnar. Þar mætir FH slóvaska liðinu Tatran Presov.
Rússarnir sendu inn kæru eftir síðari leik liðanna í St. Pétursborg í síðasta mánuði en eftirlitsmanni EHF urðu þá á mistök. Þar sem úrslitin urðu þau sömu og í fyrri leiknum í Kaplakrika hefði átt að fara í vítakeppni en leikurinn var framlengdur.
St. Pétursborg vann kærumálið og dómstóll EHF úrskurðaði að liðin þyrftu að eigast við í vítakeppni. Áfrýjun FH-inga skilaði ekki árangri. Eftir allan þessa skriffinsku, langt ferðalag, mikla vinnu og mikla spennu er ánægjulegt að sjá að FH hafi náð að tryggja sér sæti í 3. umferð keppninnar.
Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu EHF frá vítakastkeppninni sem á að hefjast klukkan 9 að íslenskum tíma. Einnig má sjá útsendinguna HÉR.