Á fjórða þúsund manns eru nú samankomnir á Landsmóti hestamanna á
Gaddstaðaflötum á Hellu og hefur verið stöðugur straumur fólks inn á
svæðið það sem af er degi, samkvæmt tilkynningu frá mótshöldurum.
Skammvinnt hvassviðri í gærkvöldi virðist engin áhrif hafa haft á mótshaldið. Dagskrá er samkvæmt áætlun og forkeppni í A-flokki gæðinga og kynbótasýningar hafa gengið mjög vel. Mikil stemning er á landsmótssvæðinu og góð veðurspá er fyrir næstu daga, útlit fyrir um og yfir 20 stiga hita um helgina, að því er segir í tilkynningu.