Didier Drogba verður væntanlega með Fílabeinsströndinni í dag þegar liðið mætir Portúgal í stórleik í G-riðli HM í Suður-Afríku.
Drogba brákaði sem kunnugt er bein í hægri handlegg skömmu fyrir mót en hefur gengist undir aðgerð og er með plastumbúðir utan um handlegginn. Þessar umbúðir voru í dag samþykktar af dómara leiksins, Jorge Larrionda.
Leikur Fílabeinsstrandarinnar og Portúgals hefst kl. 14.