James verður í markinu gegn Alsír

Ensku landsliðsmarkverðirnir, Joe Hart, David James og Robert Green á …
Ensku landsliðsmarkverðirnir, Joe Hart, David James og Robert Green á æfingu enska landsliðsins í Suður Afríku. Reuters

Talið er nær fullvíst að David James standi í marki enska landsliðsins í kvöld þegar það mætir Alsír í annarri umferð C-riðils heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Enskir fjölmiðlar fullyrða að Fabio Capello hafi ákveðið að setja Robert Green á varamannabekkinn eftir mistök hans í gegn Bandaríkjunum á síðasta laugardag.

Capello hefur sjálfur ekkert gefið út um hugsanlegar breytingar á enska liðinu. Eins er talið sennilega að Emile Heskey byrji bekknum í dag og í hans stað taki Jermain Defoe við stöðu framherja ásamt Wayne Rooney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert