Mörg falleg mörk hafa verið skoruð á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu en spennan fer nú að magnast í Suður-Afríku. Átta liða úrslitin hefjast á morgun með stórleik Brasilíumanna og Hollendinga og annað kvöld leiða Ganamenn og Úrúgvæar saman hesta sína.
Á laugardaginn fara svo fram tveir síðustu leikirnir í átta liða
úrslitunum en þá eigast við Þjóðverjar og Argentínumenn annars vegar og
hins vegar Spánverjar og Paragvæar.