Ólíklegt þykir að Lukas Podolski verði leikfær með Þjóðverjum í kvöld þegar þeir mæta Úrúgvæ í leiknum um bronsverðlaunin á HM í knattspyrnu.
Podolski, sem hefur skorað tvö mörk fyrir Þjóðverja á HM og lagt upp önnur tvö, er með hita og læknar þýska liðsins hafa fyrirskipað honum að halda kyrru fyrir í rúminu.
Líklegast þykir að Toni Kroos leysi Podolski af hólmi í byrjunarliðinu. Liðsuppstilling Þjóðverja, sem og Úrúgvæja, verður birt laust fyrir klukkan 17.30 í dag en leikurinn hefst í Port Elizabeth klukkan 18.30.