Casillas kyssti kærustuna (myndband)

Iker Casillas fékk faðmlag frá Soffíu drottningu Spánar eftir sigurinn …
Iker Casillas fékk faðmlag frá Soffíu drottningu Spánar eftir sigurinn á Hollendingum í úrslitaleik HM í gær. Reuters

Iker Casillas, markvörður og fyrirliði spænska landsliðsins, fagnaði heimsmeistaratitlinum í knattspyrnu með stæl í gær ásamt félögum sínum. Hann stóðst ekki freistinguna og smellti kossi á kærustu sína, Sara Carbonero, sem er spænsk fréttakona, þegar hún ræddi við hann í beinni útsendingu skömmu eftir að flautað var til leiksloka í Jóhannesborg í gærkvöldi.

Með því að smella hér má sjá viðtalið og kossinn í lok þess.

Í byrjun mótsins voru uppi fregnar af því að megn óánægja væri í herbúðum spænska liðsins vegna veru kærustu Casillas á keppnisstað í Suður-Afríku. Var henni m.a. kennt um tap Spánverja fyrir Sviss í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Hvort sem það var nú rétt eða rangt þá virtist enginn hafa á móti nærveru sjónvarpskonunnar í gær. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert