Ísland mætir Kýpur í undankeppni HM 2014 í kvöld klukkan 17.00. Ísland vann Noreg í fyrsta leik, 2:0, en Kýpur tapaði gegn Albaníu, 3:1.
Vitað er að Lars Lagerbäck gerir eina breytingu á byrjunarliðinu þar sem Kári Árnason er meiddur og mun Sölvi Geir Ottesen spila í hans stað. Annars er líklegt byrjunarlið að mati Morgunblaðsins svona:
Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Grétar Rafn Steinsson, Ragnar Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen, Ari Freyr Skúlason. Miðja: Rúrik Gíslason, Aron Einar Gunnarsson, Helgi Valur Daníelsson, Emil Hallfreðsson. Sókn: Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir Bjarnason.