Þjóðverjinn Jürgen Klinsmann landsliðsþjálfari Bandaríkjamanna segist stoltur af sínu liði en þrátt fyrir ósigurinn á móti Þjóðverjum í lokaumferð G-riðilsins á HM komust lærisveinar Klinsmanns áfram í 16-liða úrslitin.
„Það bjóst enginn við því að okkur tækist að komast upp úr þessum erfiða riðli. Þetta er stór áfangi en nú verðum við að sanna okkur. Leikirnir í útsláttarkeppni eru öðruvísi en mínir menn vilja standa sig vel á HM og ég treysti þeim til þess að gera það,“ sagði Klinsmann.