Meiðsli Guðjóns Vals Sigurðssonar, landsliðsmanns í handknattleik og íþróttamanns ársins 2006, reyndust minniháttar. Hann fór í ómskoðun í gær eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu landsliðsins á miðvikudaginn. Þar kom ekkert alvarlegt í ljós.
Guðjón Valur æfði með landsliðinu í gærkvöldi og tekur væntanlega þátt í landsleikjunum gegn Tékkum í dag og á morgun.
Íslendingar mæta Tékkum í Laugardalshöllinni í dag klukkan 16.15 og síðan aftur á sama stað og tíma á morgun, sunnudag.