Grænlendingurinn Angutimmarik Kreutzman er markahæsti leikmaðurinn á HM í handknattleik. Þegar öll liðin hafa leikið fjóra leiki hefur Kreutzman skorað 34 mörk. Tékkinn Filip Jicha kemur næstur með 32 mörk og þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Spánverjinn Juan Garcia koma næstir með 30 mörk. Alexander Petersson er í 13.14. sæti með 22 mörk og Logi Geirsson í 15.-20. sæti með 21 mark.