HM: Logi bjartsýnn þrátt fyrir meiðsli

Logi Geirsson í leik gegn Ástralíu á HM.
Logi Geirsson í leik gegn Ástralíu á HM. Reuters

„Ég fékk högg á vinstri öxlina, einmitt þar sem ég fór úr axlarlið fyrir tveimur mánuðum. Þetta er ekkert sem kemur til að há mér, ég veit nákvæmlega hvernig ég á að meðhöndla öxlina og ég nota vinstri höndina hvort eð er ekki neitt þannig að ég verð mættur í slaginn gegn Slóveníu,“ sagði Logi Geirsson við Morgunblaðið en hann fór meiddur af leikvelli um miðjan síðari hálfleik gegn Pólverjum í kvöld.

Logi fékk mikið högg á vinstri öxlina í leiknum og virtist við fyrstu sýn hafa hrokkið úr axlarlið. Logi var svekktari með tapið en þau meiðsli sem hann hlaut í leiknum en nánar verður rætt við Loga í viðtali sem birt verður í Morgunblaðinu á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert