Ólafur: „Mætum brjálaðir til leiks“

Ólafur Stefánsson.
Ólafur Stefánsson. Reuters

Úrslitin sem slík voru ekki aðalatriðið í dag,“ sagði Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, við Fréttavef Morgunblaðsins eftir ósigurinn gegn Þjóðverjum í Dortmund í dag.

„ Það eru ýmis atriði sem við þurfum að laga í okkar leik og nú einbeitum við okkur að því, hvílum okkur vel og notum frídaginn á morgun til hins ýtrasta. Síðan ætlum við að mæta brjálaðir til leiks á þriðjudaginn, þetta snýst allt um það, þá er allt eða ekkert fyrir okkur,“ sagði Ólafur en ítarlegra viðtal við Ólaf verður birt í Morgunblaðinu á morgun, mánudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert