Wilbek:„Dýrkeyptur sigur“

Ulrik Wilbek fagnar á HM í Þýskalandi.
Ulrik Wilbek fagnar á HM í Þýskalandi. Reuters

Ulrik Wilbek þjálfari danska landsliðsins var að sjálfsögðu ánægður með sigur sinn manna gegn Íslendingum í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Í viðtali við Ekstrabladet sagði Wilbek að sigurinn hefði verið dýrkeyptur þar sem að varnarjaxlinn Joachim Boldsen meiddist í fyrri hálfleik og er óvíst um framhaldið hjá honum á HM.

„Það var bara eitt sem við gátum gert í stöðunni. Vörnin var ekki að virka en við reyndum að halda einbeitingunni og gera fá mistök,“ sagði Wilbek eftir leikinn. Hann vildi lítið tjá sig um undanúrslitaleikinn gegn Pólverjum á fimmtudaginn. „Við ætlum að njóta augnabliksins áður en við hugsum um næsta leik,“ bætti Wilbek við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert