HM: Guðjón er markahæstur

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Ómar Óskarsson

Guðjón Valur Sigurðsson er markahæsti leikmaður heimsmeistaramótsins í handknattleik. Guðjón hefur skorað 58 mörk í 9 leikjum. Næstur í röðinni er Filip Jicha frá Tékklandi sem er með 57 mörk eftir 8 leiki. Snorri Steinn Guðjónsson er í 6. sæti með 48 mörk og Ólafur Stefánsson í 8. sæti með 45 mörk. Í 11. sæti er Alexander Petersson með 43 mörk líkt og Logi Geirsson. Ólafur er efstur á lista yfir stoðsendingar á mótinu en Ólafur er með 46 stoðsendingar. Fyrirliðinn Ólafur er einnig efstur á lista þegar mörk og stoðsendingar eru lögð saman - alls 91.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert