,,Aron Pálmarsson. Leggið þetta nafn á minnið." Þetta segir í umsögn sænska netmiðilsins nt.se eftir sigur Íslendinga á Ungverjum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag.
Aron sýndi frábæra takta í leiknum gegn Ungverjum en Hafnfirðingurinn ungi sem leikur með Evrópu- og Þýskalandsmeisturum Kiel, skoraði 8 mörk og var valinn maður leiksins eftir 32:26 sigur íslenska liðsins.