Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er ánægður með gang mála á HM enda hefur Ísland unnið báða leiki sína með sannfærandi hætti í B-riðlinum.
Guðmundur segir Brasilíu og Japan vera með öflug lið og ekki sé lengur hægt að reikna með auðveldum leikjum á HM. Það sé liðin tíð. Guðmundur segist hafa bent á þetta en hafi á stundum talað fyrir daufum eyrum.