Lélegasti hálfleikur okkar

Ólafur Stefánsson fyrirliði íslenska landsliðsins sagði í samtali við mbl.is að leiknum loknum gegn Spánverjum, að Íslendingar hafi lent í miklum vandræðum gegn vörn Spánverja í fyrri hálfleik. Það hefði verið lélegasti hálfleikur landsliðsins.

Spánn sigraði 32:24 eftir að hafa verið yfir að loknum fyrri hálfleik 20:10.

Sverre Jakobsson sagði það eina sem hann gæti gert væri að biðjast fyrirgefningar. Hann ætti enga skýringu á óförunum í fyrri hálfleik.

Ólafur Stefánsson sækir að vörn Spánverja í leiknum í dag.
Ólafur Stefánsson sækir að vörn Spánverja í leiknum í dag. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert