„Við vorum bara rassskelltir í dag. Við náðum að hanga í Dönum í fyrri hálfleik en við byrjuðum seinni hálfleikinn afar illa og misstum þá allt of langt framúr okkur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, við mbl.is eftir ósigurinn gegn Dönum á HM í handknattleik í kvöld.
„Það var ekki eins og við reyndum ekki að breyta okkar leikskipulagi bæði í vörn og sókn en allt kom fyrir ekki. Vörnin sem var svo góð á móti Makedóníu var ekki til staðar í kvöld en sóknarleikurinn var miklu betri og við tökum það jákvæða út úr þessum leik,“ sagði Snorri Steinn sem átti mjög góðan seinni hálfleik en hann skoraði alls 6 mörk í leiknum.