Ulrik Wilbek landsliðsþjálfari Dana í handknattleik lét sig vanta á blaðamannafund eftir stórsigur Spánverja á Dönum í úrslitaleiknum á HM í Barcelona í gær. Nú er komin skýring hvers vegna Wilbek mætti ekki á fundinn.
„Ég beið í einn klukkutíma og við reyndum að finna út úr því á þeim tíma hvenær halda ætti blaðamannafundinn. En við við fengum engin svör um það svo ég fór heim á hótelið ásamt okkar lækni. Ég varð að fara því mér leið afar illa og ég hafði ekki sofið í tvo daga,“ sagði Wilbek í vðtali við TV2 í Danmörku.