„Ég er ánægður með hversu vel Guðmundur Árni Ólafsson kom út í þeim tveimur leikjum sem hann spilaði með okkur í Danmörku,“ sagði Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari, sem tilkynnti í gær hvaða 17 leikmenn hann tekur með á HM í Katar.
Guðmundur var sá síðasti sem féll úr hópnum. Áður hafði hann sent Rúnar Kárason og Tandra Má Konráðsson heim í fyrradag. iben@mbl.is