Njarðvík lagði KR 99:78

Friðrik Stefánsson fyrirliði Njarðvíkinga skoraði 13 stig gegn KR-ingum í …
Friðrik Stefánsson fyrirliði Njarðvíkinga skoraði 13 stig gegn KR-ingum í kvöld. Kristinn Ingvarsson

Njarðvíkingar sigruðu KR-inga 99:78 í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik en liðin áttust við í Njarðvík í kvöld. Heimamenn voru yfir í hálfleik, 58:44, en KR-ingar áttu frábæran kafla í þriðja leikluta og komust yfir, 70:72, en í fjórða leikhlutan sýndu meistararnir mátt sinn og megin og unnu öruggan sigur.

Jeb Ivey skoraði 24 stig fyrir Njarðvík, Brenton Birmingham kom næstur með 21 og Igor Beljanski skoraði 20 stig. Hjá KR-ingum var Tyson Patterson stigahæstur með 21 stig og Brynjar Þór Björnsson skoraði 18 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert