Hörður Axel Vilhjálmsson, körfuknattleiksmaður úr Grafarvogi, ætlar að leika með Njarðvíkingum í vetur samkvæmt því sem fram kemur á vef Víkurfrétta. Hörður reyndi fyrir sér á Ítalíu á dögunum en var ekki boðinn samningur þar. Hann sagði við vf.is að hann væri mjög spenntur fyrir verkefninu enda mikil hefði fyrir körfuknattleik í Njarðvík. Hann lék 11 leiki með Fjölni í úrvalsdeildinni í fyrra.