Drago Pavlovic, sem leikið hefur með úrvalsdeildarliði Fjölnis í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik, er hættur að leika með félaginu. Jón Oddur Davíðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær. Pavlovic var afar ósáttur að vera ekki í byrjunarliði Fjölnis í sigurleik gegn ÍR á fimmtudag og í gær óskaði hann eftir því að samningi hans yrði rift við félagið. Pavlovic er stigahæsti leikmaður félagsins en hann skoraði 21 stig að meðaltali í sex leikjum með Grafarvogsliðinu.