Öruggur sigur ÍR-inga

Úr viðureign ÍR og Skallagríms í Seljaskóla í kvöld.
Úr viðureign ÍR og Skallagríms í Seljaskóla í kvöld. Árni Sæberg

ÍR-inga unnu Skallagrím, 93:58, í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í Seljaskóla í kvöld. Þetta var þriðji sigur ÍR-liðsins í deildinni en Skallagrímsmenn eru enn án stiga í neðsta sæti deildarinnar. ÍRréði lögum og lofum í leiknum í kvöld og voru með 21 stig forskot í hálfleik. 51:30.

Með sigrinum í kvöld lyftu ÍR-ingar sér upp úr 11. sæti Iceland Express deildarinnar í það tíunda. Stjarnan situr nú í 11. sæti eftir að hafa tapað fyrir Keflavík, 93:59.

Tölfræði úr leik ÍR og Skallagríms má sjá hér.

Tölfræði úr leik Keflavíkur og Stjörnunnar má sjá hér.

Nú verður gert 13 daga hlé á keppni í Iceland Express deild karla vegna leikja í Subway bikarnum, bikarkeppni KKÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert