Dallas Mavericks vann 12. leik sinn í röð í bandarísku NBA körfuboltadeildinni í nótt, nú gegn Indiana Pacers, 100:91. Dallasliðið er með langbesta vinningshlutfallið í riðlakeppni NBA það sem af er, hefur unnið 26 en tapað 7.
Úrslit annarra leikja í nótt voru þau, að Detroit Pistons vann New Orleans Hornets, 92:68, og L.A. Lakers vann Sacramento Kings, 132:128, í framlengdum leik. Smush Parker tryggði Lakers framlengingu en hann skoraði körfu þegar 0,1 sekúnda var eftir af venjulegum leiktíma. Kobe Bryant skoraði 42 stig og hirti 10 fráköst.