ÍS vann Hauka 84:74 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Expressdeildar kvenna í körfuknattleik í kvöld og er staðan því 1:1 í einvígi liðanna. Haukar voru 40:29 yfir í leikhléi en ÍS tókst með góðum leikkafla í þriðja leikhluta að jafna og á lokakaflanum gerðu þær 12 stig gegn þremur stigum Hauka. Stigahæst hjá ÍS var Casey Rost með 31 stig og Stella Kristjánsdóttir gerði 20 stig. Helena Sverrisdóttir gerði 27 stig fyrir Hauka.