KR-ingar sigruðu Snæfell, 82:79, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik sem fram fór í Vesturbænum í kvöld. Staðan var 43:30 fyrir KR í hálfleik og 67:52 eftir þriðja leikhluta en Snæfell minnkaði muninn í eitt stig á lokakaflanum. Annar leikur liðanna verður í Stykkishólmi á þriðjudagskvöldið.
Jeremiah Sola skoraði 21 stig fyrir KR og Brynjar Björnsson 15. Sigurður Þorvaldsson skoraði 21 stig fyrir Snæfell og Hlynur bæringsson 16.