Íslandsmeistarar Hauka og Keflavík tóku í forystu í einvígum sínum í undanúrslitum Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld. Haukar unnu öruggan sigur á ÍS að Ásvöllum, 78:61, og Keflavík hafði betur gegn Grindavík á heimavelli sínum 99:91. Haukar og Keflavík eru 2:1 yfir en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin.
Ifeoma Okonkwo var stigahæst í liði Hauka með 23 stig og Sigrún Ámundardóttir kom næst með 22 stig. Hjá ÍS var Casey Rost stigahæst með 27 stig Signý Hermannsdóttir skoraði 20.