Grindavík vann Njarðvík og fær oddaleik

Grindavík vann Njarðvík, 81:71, í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í kvöld en þetta var fjórða viðureign liðanna. Grindvíkingar jöfnuðu með þessu metin, 2:2, og liðin mætast því í oddaleik í Njarðvík á fimmtudaginn, skírdag.

Jonathan Griffin skoraði 28 stig fyrir Grindavík í kvöld og Páll Axel Vilbergsson 23. Brenton Birmingham skoraði 17 stig fyrir Njarðvík og Igor Beljanski 16.

Það verða því oddaleikir í báðum einvígjum undanúrslitanna en KR jafnaði metin í 2:2 gegn Snæfelli fyrr í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert