KR-ingar sigruðu Snæfell í kvöld, 104:80, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik sem fram fór í Stykkishólmi. Þeir náðu þar með að jafna einvígi liðanna í 2:2, og fá nú oddaleik á heimavelli sínum gegn Snæfelli á fimmtudaginn kemur.
Grindavík er yfir gegn Njarðvík, 63:56, undir lok þriðja leikhluta í viðureign liðanna í Grindavík.
KR hafði örugga forystu frá upphafi til enda. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 28:14 og í hálfleik stóð 48:38. Munurinn jókst smám saman í síðari hálfleiknum. Jeremiah Sola skoraði 25 stig fyrir KR og Darri Hilmarsson 23 en Hlynur Bæringsson gerði 22 stig fyrir Snæfell og Sigurður Þorvaldsson 12.