Stjarnan úr Garðabæ vann sér í kvöld sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik með því að sigra Val, 100:84, í oddaleik liðanna um annað sæti 1. deildar sem fram fór á heimavelli Vals í íþróttahúsi Kennaraháskólans í kvöld. Stjarnan fylgir þar með Þór frá Akureyri upp í úrvalsdeildina en Þórsarar unnu 1. deildina með miklum yfirburðum.