Keflavík lagði Hauka

Frá leik Hauka og Keflavíkur.
Frá leik Hauka og Keflavíkur. Ómar Óskarsson

Keflavík lagði Hauka, 78:81, í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik en liðin áttust við að Ásvöllum í kvöld. Staðan í einvíginu er 2:1 Jaukum í vil en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar titlinum.

Það stefndi allt í sigur Haukakvenna. Þær komuust í 72:58 í þriðja leikhluta en Keflavík tókst að jafna metin, 72:72, þegar tvær mínútur voru eftir og knýja fram sigur. Sigrún Sjön Ámundardóttir skoraði 19 stig fyrir Hauka en hjá Keflavík var TeKasha Watson stigahæst með 23 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert