Cleveland Cavaliers lagði Detroit Pistons, 98:82, í sjötta leik liðanna í úrslitum Austurdeildar bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar og þar með viðureign liðanna 4:2. Cleveland tryggði sér þar með sæti í úrslitum NBA deildarinnar og mætir þar San Antonio Spurs. Fyrsti leikurinn þar verður á fimmtudagskvöld en þetta er í fyrsta sinn sem Cleveland sigrar í Austurdeildinni og kemst í úrslit NBA-deildarinnar.
Daniel Gibson skoraði 31 stig fyrir Cleveland og LeBron James bætti 20 við og hirti 14 fráköst. Richard Hamilton skoraði 29 stig fyrir Detroit.