Snæfell sigraði Hamar, 77:70, í síðasta leiknum í fimmtu umferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik sem fram fór í Hveragerði í kvöld. Hólmarar hafa þar með unnið tvo leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu þremur en Hamar situr eftir með 2 stig við botn deildarinnar.
Hamar var yfir í hálfleik, 44:37 en Snæfell gerði útum leikinn á lokasprettinum. Justin Shouse skoraði 26 stig fyrir Snæfell og Sigurður Þorvaldsson 16 en Friðrik Hreinsson gerði 21 stig fyrir Hamar og George Byrd 16.