Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig fyrir
Lottomatica Róma í gær í 93:72-sigri liðsins gegn La Fortezza Bologna í ítölsku
úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Jón Arnór lék í 16 mínútur og skoraði hann
tvær þriggja stiga körfur í leiknum.
Rómverjar hafa nú unnið 11 leiki en tapað 6 það sem af er leiktíðar en liðið er með 22 stig í fjórða sæti deildarinnar. Siena er með fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar eftir 17 umferðir en liðið hefur enn ekki tapað leik. Næst verður leikið í ítölsku deildinni 5. janúar á næsta ári.