KR upp að hlið Keflavíkur

Joshua Helm leikmaður KR-inga.
Joshua Helm leikmaður KR-inga. Golli

Íslandsmeistara KR-inga komust upp að hlið Keflvíkinga í toppsæti Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik með sigri á Fjölni í Grafarvogi, 85:94. Hamar vann gríðarlega mikilvægan sigur í botnbaráttunni með sigri gegn Tindastóli á Sauðárkróki, 85:88 og í Borgarnesi unnu heimamenn í Skallagrími öruggan sigur á Stjörnunni, 89:64.

Joshua Helm var stigahæstur í liði KR-inga með 26 stig en Fjölnismenn veittu Íslandsmeisturunum svo sannarlega harða keppni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert