Dýrmætur sigur hjá Tindastóli

Kristinn Friðriksson og félagar í Tindastóli unnu góðan sigur á …
Kristinn Friðriksson og félagar í Tindastóli unnu góðan sigur á Fjölni. mbl.is

Tindastóll vann dýrmætan sigur í kvöld þegar liðið fékk Fjölni í heimsókn í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Stólarnir unnu 96:80 og löguðu stöðu sína verulega í deildinni með því en Fjölnir enn í næst neðsta sætinu.

KR-ingar lögðu Þór frá Akureyri 96:82 og í Hveragerði  áttust við Hamar og Grindavík og var það jafn leikur sem endaði  með 93:91 sigri Grindvíkinga.

Í Garðabænum tekur Stjarnan á móti Snæfelli en sá leikur hófst síðar. Staðan í hálfleik var 58:56 fyrir Snæfell.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert