KR ekki í vandræðum með Keflavík

Benedikt Guðmundsson þjálfari KR ræðir við sína menn.
Benedikt Guðmundsson þjálfari KR ræðir við sína menn. Sverrir Vilhelmsson

Íslandsmeistaralið KR sigraði Keflavík, 80:69, í stórleik 17. umferðar Iceland Express deildar karla í körfuknattleik. Keflavík og KR eru bæði með 28 stig en Grindavík er með 26 stig. ÍR átti ekki í vandræðum með Fjölni á útivelli, 112:67.

Tommy Johnson var stighæstur í liði Keflavíkur þrátt fyrir að hann hafi aðeins skorað 16 stig. Joshua Helm skoraði 18 stig fyrir KR og Jeremiah Sola var með 14 stig.

ÍR skoraði 37 stig í 1. leikhluta þar sem staðan var 37:18. Staðan í hálfleik  var 53:35. Nate Brown skoraði 23 stig fyrir ÍR en Sean Knitter var stighæstur í liði Fjölnis með 22 stig. 

Ítarleg umfjöllun verður um báða leikina í Morgunblaðinu á morgun. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert