Boston Celtics, toppliðið í NBA-deildinni í körfuknattleik, tapaði í nótt þriðja leik sínum í röð á erfiðu ferðalagi um vesturhluta Bandaríkjanna. Phoenix Suns hafði betur í uppgjöri liðanna, 85:77.
Shaquille O'Neal fagnaði þar með sínum fyrsta sigri sem leikmaður Phoenix. Hann var atkvæðalítill í sókninni og gerði aðeins 4 stig en lét til sín taka í varnarleik liðsins og tók 14 fráköst. „Hann styrkir okkur gífurlega, nú erum við ekki lengur litlu og grönnu strákarnir. Það er ánægjulegt að hafa stundum betur í slagnum undir körfunni," sagði Steve Nash, leikmaður Phoenix.
Shaq hrósaði sjálfur félaga sínum Amare Stoudamire, sem skoraði 28 stig fyrir Phoenix. „Hann er besti stóri maðurinn í deildinni í dag, ég vissi ekki að hann væri svona góður," sagði Shaq.
Boston - Phoenix 85:77
Boston: Kevin
Garnett 19, Rajon Rondo 12, Ray Allen 11, Tony Allen 9, Paul
Pierce 8, Kendrick Perkins 6, James Posey 5, Glen Davis 2, Eddie
House 2, Leon Powe 2, Scot Pollard 1.
Phoenix: Amare
Stoudemire 28, Steve Nash 18, Grant Hill 14, Boris Diaw 10, Raja
Bell 8, Shaquille O'Neal 4, Leandro Barbosa 2, Sean Marks 1.
Önnur úrslit í nótt:
Charlotte - Sacramento 115:116
Orlando - Philadelphia 115:99
Indiana - New Jersey 113:103
New York - Toronto 103:99
Cleveland - Washington 90:89
Detroit - Milwaukee 127:100
Chicago - Denver 135:121
Memphis - Dallas 83:98
New Orleans - Houston 80:100
LA Clippers - Utah 114:104
Golden State - Atlanta 110:117
Seattle - Portland 99:87