FSu og Valur eigast við í úrslitaleik

Brynjar Karl Sigurðsson er þjálfari FSu.
Brynjar Karl Sigurðsson er þjálfari FSu. mbl.is/Brynjar Gauti

Úrslitaleikur FSu og Vals í 1. deild karla í körfuknattleik um laus sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð fer fram í kvöld. Valur lagði FSu í fyrsta úrslitaleiknum á útivelli og FSu gerði slíkt hið sama á heimavelli Vals.

Leikurinn hefst kl. 19:15 í kvöld í íþróttahúsinu í Iðu og má búast við miklu fjölmenni. Fsu var sett á laggirnar fyrir þremur árum og með sigri í kvöld kemst liðið í fyrsta sinn í úrvalsdeild en Valur á langa sögu að baki í efstu deild karla í körfuknattleik. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert