Birgir Leifur Hafþórsson lék á næst besta skori á þriðja keppnisdegi Estoril meistaramótsins á Evrópumótaröðinni í dag.
Aðeins Miles Tunnicliff frá Englandi náði betra skor en hann lék á 63 höggum eða 8 höggum undir pari. Gregory Bourdy frá Frakklandi er í efsta sæti fyrir lokadaginn en hann er samtals á 17 höggum undir pari en Skotinn Alastair Forsyth er annar á 13 höggum undir pari.
Birgir er í 21.-26. sæti á höggum undir pari vallar.